Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 23. janúar 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Víðir og Þróttur V. senda lið til leiks í bikarkeppni kvenna
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Víðir Garði og Þróttur Vogum hafa ákveðið að senda sameiginlegt lið í bikarkeppni KSÍ undir merkjum Víðir/Þróttur V.

Fram kemur í yfirlýsingu frá Víði/Þrótti að hugmyndin kviknaði fyrst þegar KSÍ fjölgaði um eina deild í meistaraflokki kvenna. Á dögunum hittust fulltrúar félaganna og ákveðið var að byrja á þátttöku í bikarkeppninni. Ef vel tekst til þá verður tekin ákvörðun hvort það sé grunnur til að byggja á fyrir næsta ár.

„Félögin vilja efla kvennaknattspyrnuna á Suðurnesjunum þvi þar eru fullt af stelpum sem hafa lagt skóna a hilluna, eru í hléi frá knattspyrnu eða hafa flosnað upp úr liðunum sem fyrir eru og því viljum við láta reyna á þetta uppbyggilega verkefni í sameiningu að sögn Marteins Ægissonar framkvæmdastjóra Þróttar og Sólmundar Einvarðssonar formanns Víðis," segir í tilkynningunni.

Meistaraflokkur kvenna hefur ekki verið starfræktur í Garði síðan 2005 (að undanskildu 2009 þar sem var spilað undir merkjum GRV) og verður þetta í fyrsta sinn sem Þróttur Vogum sendir lið til leiks í meistaraflokki kvenna.

Aðilar sem langar til að taka þátt í þessu verkefni hvort sem er leikmenn eða sjálfboðaliðar er bent á að hafa samband við Sólmund hjá Víði í síma 867-7111 netfang [email protected] eða Marteinn hjá Þrótti í síma 892-6789 netfang [email protected]
Athugasemdir
banner
banner