„Vongóður eða ekki vongóður. Ég veit það ekki," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, aðspurður út í Pierre-Emerick Aubameyang á fréttamannafundi í dag.
Arsenal er að reyna að kaupa Aubameyang frá Borussia Dortmund en viðræður þess efnis eru í gangi. Wenger vildi þó lítið sjá sig um stöðu mála.
Arsenal er að reyna að kaupa Aubameyang frá Borussia Dortmund en viðræður þess efnis eru í gangi. Wenger vildi þó lítið sjá sig um stöðu mála.
„Við erum ekki nálægt því að semja við Aubameyang, Dortmund eða einhvern annan."
„Hann er einn af þeim sem gæti mögulega komið en það eru aðrir leikmenn líka. Við erum ekki búnir að taka lokaákvörðun."
„Þú skoðar leikmenn og hvað þeir geta gefið liðinu. Góðir leikmenn geta alltaf spilað saman."
Athugasemdir