„Það er mjög erfitt að heyra þetta þar sem Wilshere er í miklum metum hjá mér." Þetta hafði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, að segja eftir ummæli Roy Keane, fyrrum fyrirliða Manchester United, um miðjumanninn Jack Wilshere.
Keane sagði: „Það er ekki gott þegar Wilshere er með fyrirliðabandið. Að mínu mati er hann ofmetnasti leikmaður í heimi."
Keane sagði: „Það er ekki gott þegar Wilshere er með fyrirliðabandið. Að mínu mati er hann ofmetnasti leikmaður í heimi."
Wilshere átti ekki góðan leik gegn Östersund í Evrópudeildinni í gær. Wenger var sammála því.
„Þú mátt hafa skoðanir. Jack var í liðinu í gær og stóð sig ekki sérstaklega vel."
„Þetta var ekki hans besta frammistaða. Roy Keane veit að svona getur komið fyrir alla."
Rétt í þessu var verið að draga í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar og mætir Arsenal þar AC Milan.
Athugasemdir