Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 23. febrúar 2018 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zidane: Bale verður alltaf mikilvægur leikmaður
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, segir að Gareth Bale sé mikilvægur leikmaður hjá félaginu.

Bale hefur aðeins byrjað einn af síðustu fjórum keppnisleikjum Real Madrid og eru sögusagnir alltaf á kreiki um að hann sé á förum frá Madrídarstórveldinu. Er hann oftar en ekki orðaður við endurkomu til Englands, orðaður við Manchester United.

„Hann er mikilvægur leikmaður, hann verður alltaf mikilvægur leikmaður," sagði Zidane um Bale.

Hinn 28 ára gamli Bale hefur verið að glíma mikið við meiðsli og Zidane vill ekki sjá hann meiðast aftur.

„Hann er að æfa vel og leggur mikið á sig eins og aðrir leikmenn. Ég vil sjá Gareth í 100% standi, ég vil ekki sjá hann meiðast aftur. Það eru margir leikir framundan og Gareth mun eflaust gegna mikilvægu hlutverki. Vonandi mun hann halda sér heilum."
Athugasemdir
banner
banner