Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mið 23. mars 2016 13:00
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá Herning
Daniel Agger: Klopp þarf eitt ár til að sýna framfarir
Borgun
Agger tæklar Brynjar Björn Gunnarsson í landsleik með Dönum árið 2006.
Agger tæklar Brynjar Björn Gunnarsson í landsleik með Dönum árið 2006.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
„Ísland stóð sig mjög vel í undankeppninni og þetta er gott lið," sagði Daniel Agger, varnarmaður danska landsliðsins við Fótbolta.net í Herning í gær.

Síðan Agger byrjaði að spila með danska landsliðinu hefur liðið unnið Ísland alla fjóra leikina á milli þjóðanna. Síðasti leikur Íslands við Dani var árið 2011 en margt hefur breyst síðan þá og Ísland er á leið á EM í sumar á meðan Danir sitja heima.

„Í augnablikinu er ég ekki hissa á gengi Íslands. Ég er hissa á uppganginum ef ég horfi nokkur ár til baka en ég verð að hrósa liðinu fyrir það. Það er mikið afrek að komast á EM og það verður að hrósa leikmönnunum."

Agger spilar í dag með Bröndby í Danmörku en hann snéri heim til Danmerkur árið 2014 eftir að hafa spilað með Liverpool frá því árið 2006. Hann er bjartsýnn á gang mála hjá Liverpool í dag.

„Það er að verða betra og betra. Þetta tekur tíma og ég tel að nýi stjórinn þurfi að minnsta kosti eitt ár í viðbót til sýna framfarir hjá liðinu," sagði Agger en hann er ánægður með Jurgen Klopp í brúnni. „Ég kann vel við leikstílinn hans og þetta lítur vel út."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner