Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 23. mars 2017 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Abou Diaby byrjaður að æfa eftir meiðsli
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Abou Diaby ætlar sko ekki að gefast upp þrátt fyrir endalausa meiðslahrinu.

Diaby kom til Marseille fyrir tveimur árum. Á fyrsta ári spilaði Frakkinn aðeins 135 mínútur og þá er hann ekki búinn að spila nema 130 mínútúr á þessu tímabili.

Það að Diaby sé frá vegna meiðsla er ekkert nýtt, en á 9 árum hjá Arsenal tókst honum aðeins að koma við sögu í aðeins 200 leikjum.

Diaby verður 31 árs í maí og á því ekki mikið eftir af ferlinum, en hann var í miklu uppáhaldi hjá Arsene Wenger.
Athugasemdir
banner
banner