banner
   fim 23. mars 2017 16:15
Magnús Már Einarsson
„Liverpool á að kaupa Joe Hart"
Joe Hart.
Joe Hart.
Mynd: Getty Images
Ray Wilkins, sérfræðingur Sky Sports, segir að Liverpool eigi að reyna að kaupa Joe Hart frá Manchester City í sumar.

Simon Mignolet náði að endurheimta markmannsstöðuna hjá Liverpool af Loris Karius fyrr á tímabilinu en báðir hafa þeir fengið sinn skammt af gagnrýni.

Hart er í dag á láni hjá Torino og óvissa er með framtíð hans hjá Manchester City.

„Ef ég væri (Jurgen) Klopp þá myndi ég klárlega reyna að fá hann. Hann er mjög hæfileikaríkur ungur drengur og ég myndi vilja sjá hann spila aftur í ensku úrvalsdeildinni," sagði Wilkins um Hart.

„Karius yrði líklega áfram ef það kæmi toppmarkvörður til Liverpool en Mignolet sér sig líklega sem aðalmarkvörð svo hann myndi þá fara."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner