Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. mars 2017 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vitolo er spenntur fyrir Barcelona
Mynd: Getty Images
Spænski kantmaðurinn Vitolo segist vera opinn fyrir tilboði frá Barcelona eftir að fréttamaður Marca spurði hann út í orðrómana.

Vitolo er 27 ára gamall og hefur verið í lykilhlutverki hjá Sevilla á tímabilinu auk þess að vera búinn að skora 3 mörk í 9 landsleikjum fyrir Spán á síðustu tveimur árum.

„Hver myndi ekki vilja spila fyrir eitt af stærstu liðum Spánar? Það væri fínt," sagði Vitolo við Marca.

„Þessi félög eru alltaf orðuð við marga leikmenn þannig að það er ekki hægt að taka svona orðrómum alvarlega. Ég er rólegur því mér líður mjög vel hjá Sevilla."
Athugasemdir
banner
banner
banner