Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. mars 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Harpa og Guðjón Pétur í framboði í Garðabæ
Harpa Þorsteinsdóttir.
Harpa Þorsteinsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harpa Þorsteinsdóttir, landsliðskona og framherji Stjörnunnar, og Guðjón Pétur Lýðsson, miðjumaður Vals, eru bæði á leið í framboð fyrir sveitastjórnarkosningar í Garðabæ í vor.

Þau eru bæði á lista hjá nýju framboði sem heitir Garðabæjarlistinn.

Harpa er í 3. sæti á listanum en Guðjón Pétur er í 6. sætinu.

Harpa var í gær valin í íslenska landsliðshópinn á ný eftir hlé en hún er í hópnum sem er á leið til Slóveníu og Færeyja í apríl.

Guðjón Pétur varð Íslandsmeistari með Val í fyrra en hann ólst upp á Álftanesi sem er hluti af Garðabæ í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner