Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. mars 2018 22:16
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Hvíti riddarinn með fullt hús stiga
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Skallagrímur 0 - 2 Hvíti riddarinn
0-1 Stefnir Guðmundsson ('49)
0-2 Einar Marteinsson ('90)

Hvíti riddarinn er með fullt hús stiga eftir þrjár fyrstu umferðirnar í C-deild Lengjubikarsins.

Riddarinn spilaði við Skallagrím á Akranesi og gerði Stefnir Guðmundsson fyrsta mark leiksins snemma í síðari hálfleik.

Einar Marteinsson innsiglaði sigur Mosfellinga á lokamínútunum.

Hvíti riddarinn er með markatöluna 16:1 á toppi riðilsins á meðan Skallagrímur er með þrjú stig eftir þrjár umferðir.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner