Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 23. mars 2018 14:52
Magnús Már Einarsson
Vináttuleikir: Suarez og Cavani afgreiddu Tékka
Cavani og Suarez voru á skotskónum í dag.
Cavani og Suarez voru á skotskónum í dag.
Mynd: Getty Images
Úrúgvæ lagði Tékka 2-0 í vináttuleik sem fór fram á æfingamóti í Kína í dag. Luis Suarez og Edinson Cavani skoruðu mörk Úrúgvæa en þeir mæta Wales í úrslitaleik á mánudaginn.

Úrúgvæ er í A-riðli með Rússlandi, Sádi-Arabíu og Egyptalandi á HM í sumar en Tékkar náðu ekki að vinna sér þátttökurétt á mótinu.

Japan og Malí gerðu einnig 1-1 jafntefli í vináttuleik í Belgíu í dag. Japan er með Póllandi, Senegal og Kolumbíu í H-riðli á HM í sumar en Malí komst ekki á mótið.

Úrúgvæ 2 - 0 Tékkland
1-0 Luis Suarez ('10, víti)
2-0 Edinson Cavani ('37)

Japan 1 - 1 Malí
0-1 Abdoulaye Diaby ('44)
1-1 Shoya Nakajima ('90)
Athugasemdir
banner
banner