Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 23. mars 2018 15:48
Magnús Már Einarsson
Zlatan í La Galaxy (Staðfest)
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic hefur gengið til liðs við bandaríska félagið LA Galaxy en þetta var staðfest í dag.

Hinn 36 ára gamli Zlatan fékk sig lausan frá Manchester United í gær og hann er nú mættur til Bandaríkjanna.

„Fyrst ég er að koma til Bandaríkjanna þá er viðeigandi að ganga til liðs við sigursælasta félagið í MLS deildinni, LA Galaxy," sagði Zlatan.

Zlatan á magnaðan feril að baki en hann hefur orðið ellefu sinnum deildarmeistari á ferli sínum.

Zlatan hefur spilað með Malmö, Barcelona, Paris Saint-Germain, Manchester United, Ajax Amsterdam, AC Milan og Inter Milan á ferlinum.

Keppni í MLS deildinni hófst á dögunum en LA Galaxy er með fjögur stig eftir tvo leiki þar.



Athugasemdir
banner
banner