Sandro, miðjumaður Tottenham, segist ekki hafa rifist við knattspyrnustjórann Tim Sherwood.
Sandro var ekki í leikmannahópnum gegn Fulham um liðna helgi.
Sandro var ekki í leikmannahópnum gegn Fulham um liðna helgi.
Sherwood sagði eftir leikinn að Sandro gæti skrifað það sem hann vildi á Twitter. Hann þyrfti hinsvegar að sýna að hann væri nægilega góður til að komast í liðið. Sandro hafði tilkynnt á Twitter að hann væri ekki í hópnum þó hann væri leikfær.
Sandro segir í viðtali að hann virði Sherwood og hafi ekkert á móti honum.
„Ég mun halda áfram að vinna hljóðlega. Ég er atvinnumaður. Ég þarf að vinna. Mér líður vel hjá Tottenham og fólk kann vel við mig. Þetta er heimili mitt," segir Sandro.
Athugasemdir