Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. apríl 2014 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Marseille hafnaði Paragvæ
Marcelo Bielsa
Marcelo Bielsa
Mynd: Getty Images
Marcelo Bielsa, þjálfari Marseille í Frakklandi, hafnaði því að taka við paragvæska landsliðinu en þetta kom fram á Radio Monumental í gær.

Paragvæ hefur verið að leita að nýjum þjálfara frá því knattspyrnusambandið rak Gerardo Pelusso á síðasta ári en Victor Genes er tímabundið að þjálfa liðið.

Alejandro Domgineuz, varaforseti paragvæska knattspyrnusambandsins, staðfesti við útvarpsstöðina Radio Monumental að Marcelo Bielsa hjá Marseille hafnaði starfinu en hann vill ekki taka við landsliði í augnablikinu.

Bielsa hefur undanfarna daga verið orðaður við Barcelona en það þykir líklegt að Tata Martino verði látinn taka poka sinn hjá spænska félaginu í sumar og þykir Bielsa líklegastur til þess að taka við.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner