Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. apríl 2014 16:30
Jóhann Óli Eiðsson
Tvífarar: Zlatan Ibrahimovic og...
Mynd: Samsett - netið
Tvífarar vikunnar snúa aftur úr páskafríi þennan síðasta vetrardag. Sendandi þessa tvífara vildi ekki láta nafns síns getið en ef þú hefur góða tillögu að næstu tvíförum, og vilt sjá nafnið þitt hér á síðunni, ekki hika við að hafa samband á [email protected] eða gauka þeim að mér á Twitter (@jedisson). Því fleiri, því betra.

Að þessu sinni fannst tvífari Zlatan Ibrahimovic. Zlatan er 32 ára framherji Paris Saint German í Frakklandi en hann hefur komið víða við á ferli sínum og ávallt virðast titlar elta hann. Malmö, Ajax, Juventus, Inter, Barcelona, AC Milan og nú síðast PSG, þetta er ekki amaleg ferilsskrá. Að auki á hann 48 mörk fyrir sænska landsliðið í 97 leikjum.

Tvífari hans er Jóhann Már Valdimarsson en sá er þrítugur laganemi en auk þess að vera yfirmaður á Stúdentakjallaranum. Ferilsskráin þegar kemur að knattspyrnunni er styttri en hjá Zlatan en það er enn tími til að bæta við hana.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner