Liverpool 1 - 2 Crystal Palace
1-0 Philippe Coutinho ('24)
1-1 Christian Benteke ('42)
1-2 Christian Benteke ('74)
1-0 Philippe Coutinho ('24)
1-1 Christian Benteke ('42)
1-2 Christian Benteke ('74)
Liverpool fékk Crystal Palace í heimsókn í dag en leikurinn var síðasti leikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Philippe Coutinho kom heimamönnum yfir á 24. mínútu og virtust Liverpool ætla að fara með eins marks forystu í hálfleikinn.
Christian Benteke, fyrrum leikmaður Liverpool var hins vegar ekki á því og jafnaði leikinn á 42. mínútu.
Þegar rúmlega stundarfjórðungur var til leiksloka var Benteke aftur á ferðinni og kom hann gestunum í Crystal Palace.
Liverpool tókst ekki að jafna leikinn og fór Crystal Palace með sigur af hólmi á Anfield. Palace nálgast nú efri helming deildarinnar eftir að hafa verið lengi vel í fallsæti. Liverpool hins vegar er komið í hörku baráttu um Meistaradeildarsætin við Manchester liðin.
Athugasemdir