Burnley 0 - 2 Manchester Utd
0-1 Anthony Martial ('21 )
0-2 Wayne Rooney ('39 )
0-1 Anthony Martial ('21 )
0-2 Wayne Rooney ('39 )
Leik Burnley og Man Utd á Turf Moor er nú lokið en það voru gestirnir frá Manchester sem unnu afar verðskuldaðan sigur.
Liðin gerðu markalaust jafntefli á Old Trafford í vetur í svakalegum leik þar sem Man Utd gerði allt nema að skora er Tom Heaton átti stjörnuleik í marki Burnley en það var annað á teningunum í dag.
Anthony Martial skoraði fyrsta mark leiksins eftir frábæra skyndisókn sem hann byrjaði sjálfur áður en hann gaf hann á Herrera sem skilaði boltanum aftur á Frakkann sem afgreiddi snyrtilega framhjá Tom Heaton í markinu.
Það var svo Wayne Rooney, kominn aftur í byrjunarliðið í fyrsta sinn síðan í byrjun mars, sem tvöfaldaði forystu gestanna með skoti af stuttu færi eftir að Tom Heaton varði tilraun Anthony Martial út í teiginn.
Heimamenn voru kraftlitlir og ógnuðu aldrei marki gestanna og áttu ekki eina tilraun á markramman sjálfan, lokatölur 0-2.
Man Utd er áfram í fimmta sæti, einu stigi fyrir aftan Man City en liðin mætast í svakalegum grannaslag næsta fimmtudag á Etihad vellinum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir