Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 23. apríl 2017 15:00
Kristófer Kristjánsson
Harry Kane: Vinnum deildina fyrir Ugo
Harry Kane
Harry Kane
Mynd: Getty Images
Harry Kane segir að leikmenn Tottenham séu staðráðnir í að reyna vinna ensku úrvalsdeildina fyrir Ugo Ehiogo sem lést fyrir helgi en hann var í þjálfarateymi liðsins.

Tottenham tapaði gegn Chelsea í undanúrslitum enska bikarsins í gær, 4-2, á Wembley en Ehiogo var minnst fyrir leik með einnar mínútu klappi.

Kane segir að hann hafi vonast til að vinna leikinn fyrir Ugo Ehiogo en nú ætla leikmenn Tottenham að einbeita sér að deildinni.

„Undanfarnir dagar hafa verið erfiðir, Ugo var frábær karakter á æfingarsvæðinu og þetta voru sláandi fréttir," sagði Kane við fjölmiðla eftir leikinn í gær.

„Að sjálfsögðu munum við gera allt sem við getum til að vinna deildina fyrir hann. Það eru sex erfiðir leikir eftir í deildinni og við getum ekki stjórnað hvað Chelsea gerir núna."
Athugasemdir
banner
banner
banner