Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 23. apríl 2017 21:46
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ítalía: Juventus með öruggan heimasigur
Paulo Dybala skoraði eitt marka Juventus í kvöld
Paulo Dybala skoraði eitt marka Juventus í kvöld
Mynd: Getty Images
Juventus 4 - 0 Genoa
1-0 Ezequiel Munoz ('17 , sjálfsmark)
2-0 Paulo Dybala ('18 )
3-0 Mario Mandzukic ('41 )
4-0 Leonardo Bonucci ('64 )

Juventus fékk Genoa í heimsókn í síðasta leik kvöldsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Ítalíumeistararnir byrjuðu af krafti en Ezequiel Munoz varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 17. mínútu. Paulo Dybala tvöfaldaði svo forystu Juventus mínútu síðar.

Skömmu áður en flautað var til hálfleiks bætti Mario Mandzukic við þriðja marki Juventus.

Leonardo Bonucci fullkomnaði svo öruggan 4-0 sigur Juventus með marki á 64. mínútu.
Athugasemdir
banner
banner
banner