Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 23. apríl 2017 17:00
Kristófer Kristjánsson
Mourinho: Rojo og Zlatan þurfa að fara í aðgerð
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic og Marcos Rojo þurfa báðir að fara í aðgerð eftir að hafa báðir orðið fyrir meiðslum á hné í leik Man Utd og Anderlecht í Evrópudeildinni í síðustu viku. Þetta segir Jose Mourinho, stjóri liðsins, en hann vill ekkert segja um hversu lengi þeir gætu verið frá.

„Allir eru daprir," sagði Mourinho við blaðamenn eftir sigur Man Utd á Burnley á Turf Moor í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Við vorum að hugsa til þeirra, þeir verða að vera sterkir. Því miður eru þeir ekki þeir fyrstu né þeir síðustu til að lenda í mikilvægum meiðslum. Aðgerðir bíða þeirra beggja en ég vil ekki segja of mikið."

Portúgalinn var hinsvegar ánægður með úrslitin en Anthony Martial og Wayne Rooney skoruðu báðir í þægilegum sigri.

„Við vissum hvernig þeir spila og við spiluðum gegn styrkleikum þeirra. Þetta voru frábær úrslit og verðskulduð."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner