Sagði Brynjar Gestsson að loknum leik ÍR og Augnabliks í Breiðholtinu í kvöld.
Lestu um leikinn: ÍR 1 - 0 Augnablik
Spurður út í vítaspyrnudóminn sagði hann. „Hann setur hendina í bakið á honum það er ljóst. Ég veit ekki hversu mkið hann ýtir á það en ef þú setur hendina í bakið þá hugsanlega þarf dómarinn að dæma."
Umdeilt atvik gerðist undir lok leiks þegar varamaðurinn Aron Skúli Brynjarsson fékk að líta rautt spjald fyrir að er virtist ansi litlar sakir og virkaði Brynjar afar ósáttur með þann dóm.
„Strákgreyið var bara að hoppa upp í boltann og mann sýnist hann bara ætla gefa honum gult spjald en þá verður allt vitlaust og hann rífur upp rauða spjaldið."
ÍR-ingar eru þó komnir í 32.liða úrslit Mjólkurbikarsins þar sem þeirra bíður erfitt verkefni gegn stórliði FH.
„Það er bara ógeðslega gaman en við þurfum að bæta okkur hratt og vel til að eiga eitthvað erindi í þann leik,"