Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 23. apríl 2018 20:52
Ívan Guðjón Baldursson
England: Walcott stöðvaði sigurgöngu Newcastle
Mynd: Getty Images
Everton 1 - 0 Newcastle
1-0 Theo Walcott ('51)

Everton stöðvaði sigurgöngu Newcastle með góðum sigri er liðin mættust í enska boltanum í kvöld.

Liðin eru bæði um miðja deild og voru því aðeins að spila upp á stoltið. Úr varð nokkuð dapur leikur þar sem lítið var um góð færi.

Theo Walcott gerði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik og er Everton í áttunda sæti eftir sigurinn, átta stigum frá Burnley í Evrópudeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner