mán 23. apríl 2018 16:31
Magnús Már Einarsson
Hegazi ekki í bann fyrir að slá Ings
Hegazi í baráttunni.
Hegazi í baráttunni.
Mynd: Getty Images
Ahmed Hegazi, varnarmaður WBA, fær ekki ákæru frá enska knattspyrnusambandinu vegna atviks sem átti sér stað í 2-2 jafnteflinu gegn Liverpool um helgina.

Hegazi sló Danny Ings framherja Liverpol í magann en Stuart Atwell dómari leiksins sá ekki atvikið.

Þriggja manna aganefnd enska knattspyrnusambandsins skoðaði atvikið og ekki var samdóma álit þar um að rautt spjald hefði verið að ræða.

Hinn 27 ára gamli Hegazi sleppur því við ákæru og leikbann.

Sjá einnig:
Myndband: Hegazi kýldi Ings en slapp hjá dómaranum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner