Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 23. apríl 2018 20:59
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Verona að falla
Mynd: Getty Images
Genoa 3 - 1 Verona
1-0 Iuri Medeiros ('7)
1-1 Romulo ('64, víti)
2-1 Daniel Bessa ('78)
3-1 Goran Pandev ('93)

Verona er svo gott sem fallið eftir þriðja tap liðsins í röð í ítölsku deildinni.

Verona heimsótti Genoa í dag og komust heimamenn yfir strax á sjöundu mínútu.

Romulo jafnaði fyrir gestina úr vítaspyrnu í síðari hálfleik en Daniel Bessa kom Genoa aftur yfir áður en Goran Pandev innsiglaði sigurinn í uppbótartíma. Markið hans Bessa gæti sent Verona niður um deild, en sókndjarfi miðjumaðurinn er einmitt á láni frá Verona og fagnaði markinu.

Verona er sex stigum frá öruggu sæti eftir tapið meðan Genoa er um miðja deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner