Alexandre Lacazette var maður leiksins er Arsenal lagði West Ham með fjórum mörkum gegn einu í enska boltanum í gær.
Lacazette skoraði tvennu og kom þannig Arsenal fjórum stigum frá Burnley í Evrópudeildarbaráttunni.
Lacazette skoraði tvennu og kom þannig Arsenal fjórum stigum frá Burnley í Evrópudeildarbaráttunni.
Stuðningsmenn Arsenal eru flestir ánægðir með framlag Lacazette á seinni hluta tímabilsins. Einn þeirra var svo ánægður með komu Frakkans að hann flúraði andlit sóknarmannsins á rasskinnina.
Lacazette sá mynd af rasskinninni, setti sig í samband við manninn og bauð honum á leikinn gegn West Ham.
Fyrsta sem Lacazette gerði að leikslokum var að finna nýja vin sinn og smella í sigurmynd á Instagram.
Athugasemdir