Leikmenn ítalska boltans spiluðu með rauðan varalit á kinninni um helgina.
Varaliturinn er til að vekja athygli á ofbeldi gegn kvenfólki, sem hefur lengi verið stórt vandamál á Ítalíu og víðar.
Varaliturinn er til að vekja athygli á ofbeldi gegn kvenfólki, sem hefur lengi verið stórt vandamál á Ítalíu og víðar.
Leikmannasamtökin fundu upp á þessu uppátæki í samvinnu við WeWorld Onlus mannúðarsamtökin.
Herferðin hefur vakið mikla athygli á Ítalíu og hefur myllumerkið #unrossoallaviolenza (gefum ofbeldi rautt spjald) verið notað óspart á samfélagsmiðlum.
Athugasemdir