Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. maí 2013 21:10
Sebastían Sævarsson Meyer
1. deild: Haukar unnu á Selfossi - Fyrsti sigur Tindastóls
Tindastóll vann sinn fyrsta sigur.
Tindastóll vann sinn fyrsta sigur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur leikjum var að ljúka í 1.deild karla þar sem Haukar og Tindastóll unnu góða útisigra.

Haukar kíktu í heimsókn á Selfoss og fóru þar með 3-2 sigur af hólmi. Eftir að Javier Zurbano Lacalle hafði komið heimamönnum yfir sneru gestirnir blaðinu við með mörkum frá Hilmari Trausta Arnarssyni, Brynjari Benediktssyni og Hilmari Geir Eiðssyni.

Josep David Yoffe minnkaði síðan muninn í eitt mark fyrir Selfyssinga en nær komust heimamenn ekki og lauk leiknum með 3-2 sigri Hauka. Haukar eru í öðru sæti en Selfoss er í því áttunda.

Þá sótti Tindastóll þrjú stig í Laugardalinn þegar liðið hafði betur 2-1 gegn Þrótti Reykjavík. Elvar Páll Sigurðsson og Steven Beattie komu gestunum tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik áður en Oddur Björnsson minnkaði muninn fyrir Þrótt í seinni hálfleik og þar við stóð.

Þróttur hefur því tapað fyrstu þremur leikjunum en Tindastóll er í þriðja sæti eftir sinn fyrsta sigur í deildinni.

Selfoss 2 - 3 Haukar
1-0 Javier Zurbano Lacalle ('7)
1-1 Hilmar Trausti Arnarsson ('31)
1-2 Brynjar Benediktsson ('43)
1-3 Hilmar Geir Eiðsson ('48)
2-3 Joseph David Yoffe ('71)

Þróttur R. 1 - 2 Tindastóll
0-1 Elvar Páll Sigurðsson ('31)
0-2 Steven Beattie ('38)
1-2 Oddur Björnsson ('55)
Slapp
banner
banner
banner