Einn leikur var spilaður í A-riðli 1.deildar kvenna í gær en þá tóku ÍR-ingar á móti nýliðum Víkings Ólafsvíkur. Um var að ræða fyrstu leiki liðanna í mótinu og svo fór að þau skiptu með sér stigunum.
ÍR 2-2 Víkingur Ólafsvík
1-0 Þórdís Sara Þórðardóttir ('8)
1-1 Freydís Bjarnadóttir ('29, víti)
1-2 Elín Ósk Jónasdóttir ('57)
2-2 Eva Þóra Hartmannsdóttir ('60)
Þórdís Sara Þórðardóttir kom heimakonum yfir í upphafi leiks en reynsluboltinn Freydís Bjarnadóttir jafnaði með marki úr vítaspyrnu á 29. mínútu.
Þannig stóðu leikar í hálfleik en á 57. mínútu tóku gestirnir forystuna með marki Elínar Óskar Jónasdóttur. ÍR-ingar voru þó ekki lengi að svara því þremur mínútum síðar jafnaði Eva Þóra Hartmannsdóttir metin og þar við sat.


