Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. maí 2013 21:59
Sebastían Sævarsson Meyer
2. deild: Grótta og ÍR með sigra
Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Þá er leikjum kvöldsins í 2. deild karla lokið en eftir að Hamar og HK skildu jöfn fyrr í kvöld unnu Grótta og ÍR sína leiki.

Grótta lagði Reyni Sandgerði á útivelli með tveimur mörkum gegn einu. Guðmundur Marteinn Hannesson og Jens Elvar Sævarsson skoruðu fyrir Gróttu en Gunnar Wigelund skoraði mark heimamanna sem dugði skammt.

Þetta var fyrsti sigur Gróttu á tímabilinu en liðið er í sjötta sæti með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina en Reynir er enn án stiga á botninum.

Þá vann ÍR einnig 2-1 sigur þegar liðið lagði Ægi á heimavelli. Jón Gísli Ström kom ÍR tveimur mörkum yfir áður en Darko Matejic minnkaði muninn fyrir gestina úr vítaspyrnu og þar við sat.

ÍR er í fjórða sæti með sex stig en Ægir situr í því níunda með þrjú stig.

Reynir Sandgerði 1 - 2 Grótta
0-1 Guðmundur Marteinn Hannesson ('16)
1-1 Gunnar Wigelund ('24)
1-2 Jens Elvar Sævarsson ('45)

ÍR 2 - 1 Ægir
1-0 Jón Gísli Ström ('16)
2-0 Jón Gísli Ström ('54)
2-1 Darko Matejic ('71, víti)
Slapp
banner
banner