Enskir fjölmiðlar greina frá því að Arsenal sé reiðubúið að hlusta á tilboð í belgíska varnarmanninn Thomas Vermaelen, manninn sem tók við fyrirliðabandinu þegar Robin van Persie var seldur.
Vermaelen var keyptur frá Ajax fyrir 10 milljónir punda fyrir fjórum árum en Arsenal ku vera tilbúið að selja hann núna fyrir fimm milljónir.
Vermaelen er 27 ára en þrátt fyrir að vera fyrirliði hefur hann þurft að sætta sig við að vera varamaður þar sem Per Mertesacker og Laurent Koscielny hafa eignað sér miðvarðastöðuna. Wenger er ákveðinn í að halda Frakkanum Koscielny sem orðaður hefur verið við FC Bayern München.
Þá hefur Arsenal verið orðað við Ashley Williams.hjá Swansea.
Marouane Chamakh, Andrey Arshavin, Nicklas Bendtner, Park Chu-Young og Andre Santos eru allir á leið frá Arsenal í sumar.



