Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 23. maí 2013 12:19
Elvar Geir Magnússon
De Gea og Isco með U21-liði Spánar á EM
David de Gea, markvörður Manchester United, og Isco Alarcon hjá Malaga eru meðal leikmanna sem valdir voru í spænska hópinn fyrir EM U21-landsliða sem fram fer í Ísrael.

Það er því ljóst að leikmennirnir verða ekki með í Álfukeppninni sem fram fer á þessu ári.

Cristian Tello, Thiago Alcantara og Iker Muniain eru einnig meðal leikmanna í spænska U21-liðinu sem er ansi sigurstranglegt. Hópurinn kemur saman næsta mánudag.

Spánn er í riðli með Rússlandi, Þýskalandi og Hollandi.

Spænski hópurinn: De Gea (Manchester United), Joel Robles (Atletico Madrid), Marino (Villarreal); Montoya (Barcelona), Bartra (Barcelona), Muniesa (Barcelona), Carvajal (Bayer Leverkusen), Nacho (Real Madrid), Alberto Moreno (Sevilla), Inigo Martinez (Real Sociedad), Alvaro Gonzalez (Real Zaragoza); Muniain (Athletic Bilbao), Koke (Atletico Madrid), Thiago (Barcelona), Rodrigo (Benfica), Sarabia (Getafe), Camacho (Malaga), Isco (Malaga), Illarramendi (Real Sociedad), Canales (Valencia); Tello (Barcelona), Alvaro Vazquez (Getafe), Morata (Real Madrid)
Slapp
banner