,,Við börðumst fyrir sigrinum og stóðum saman sem lið," sagði Elvar Páll Sigurðsson leikmaður Tindastóls við Fótbolta.net eftir 2-1 útisigur liðsins á Þrótti í fyrstu deildinni í kvöld.
,,Þeir lágu okkur í lokin og við börðumst fyrir þessum sigri. Menn unnu fyrir hvern annan og liðsheildin skilaði þessu. Maður leit oft á klukkuna."
Elvar skoraði fyrra mark Tindastóls í kvöld og fagnaði með því að hlaupa til varamarkvarðarins Sigurðar Björnssonar og fagna með honum.
,,Diddi kom með þessa hugmynd, að ég myndi hlaupa til hans og við myndum taka smá skemmtun til hans. Aðeins að halda móralnum uppi, það heldur manni vakandi."
Tindastólsmenn eru taplausir eftir þrjár umferðir og Elvar er ánægður með byrjunina.
,,Við erum komnir með fimm stig eftir þrjá leiki og við ætlum að halda þessu áfram. Við förum í hvern leik til að vinna og það er metnaður í okkar liði," sagði Elvar.
Hér að ofan má jsá viðtalið í heild sinni.




















