Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. maí 2013 17:34
Elvar Geir Magnússon
Heimild: 433.is 
Gaui Þórðar segir þjálfara ÍA nota Jóa Kalla rangt
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Guðjón Þórðarson telur að hæfileikar sonar síns, Jóhannesar Karls, séu alls ekki nýttir hjá ÍA. Þetta sagði Guðjón í viðtali við 433.is.

Guðjón segir að Jóhannes sé að eyða kröftum í að hreinsa til eftir samherja sína sem ekki séu að standa sig. Hann segir miðverði ÍA, Ármann Smára Björnsson og Kára Ársælsson, ekki vinna vinnuna sína.

„Það sem kemur mér á óvart er að Jói skuli þurfa að fara til baka og kljást við senterinn sem þessir hafsentar eiga fyrst og fremst að sjá um. Svo þegar senterinn gefur boltann til baka á miðjuna þarf Jói að snúa sér og hlaupa og pressa miðjumanninn," segir Guðjón.

„Hann þarf jafnvel að hlaupa út á kantinn til að hjálpa bakvörðunum því miðverðirnir eru fastir inni í teignum."

Guðjón segir að Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, ætti að finna annan mann í þetta „sóphlutverk" á miðjunni svo hæfileikar Jóa Kalla geti nýst almennilega. Jói eigi að fá frjálsari hendur til að sækja og koma sér í færi.

„Hann getur skorað og þó hann fari fram í vítasteig andstæðinganna skilar hann sér til baka í varnarvinnuna á miðsvæðinu," segir Guðjón.
Slapp
banner
banner