Húsavíkurvöllur tilbúinn í júlí
Eftir erfiða tíð í vetur hafa flestir fótboltavellir á Norðurlandi komið afar illa undan vetri. Þórsarar eru byrjaðir að spila á Þórsvelli en hiti er undir honum.
KF stefnir á að spila á Ólafsfjarðarvelli gegn KA á laugardag þrátt fyrir að snjór sé umhverfis völlinn. Lengra er í að spilað verði á öðrum grasvöllum á Norðurlandi en líklegt er að þeir verði flestir klárir í júní.
KF stefnir á að spila á Ólafsfjarðarvelli gegn KA á laugardag þrátt fyrir að snjór sé umhverfis völlinn. Lengra er í að spilað verði á öðrum grasvöllum á Norðurlandi en líklegt er að þeir verði flestir klárir í júní.
Á Húsavík er staðan slæm en Völsungur hefur byrjað tímabilið á nýjum gervigrasvelli sínum. Líklegt er að liðið komist ekki á grasvöllinn fyrr en í júlí.
,,Staðan er ekki góð og það er mjög langt síðan hún hefur svona slæm. Það er mjög erfitt að segja hvenær völlurinn verður klár og ég reikna ekki með að hann verði klár fyrr en í júlí," sagði Kristján Gunnar Óskarsson vallarstjóri á Húsavík í samtali við Fótbolta.net í dag.
Ástandið er einnig mjög slæmt á Sauðárkróki en Jóhann G. Kristinsson vallarstjóri á Laugardalsvelli kíkti á aðstæður þar í síðustu viku.
Niðurstaðan var sú að það þyrfti að gata völlinn betur, vökva og sá í hann. Ef tíðin verður góð þá eru bjartsýnustu menn að vonast eftir því að hægt verður að spila á aðalvellinum áður en júní klárast en þetta kemur fram á heimasíðu Tindastóls.
Tindastóll spilaði sinn fyrsta heimaleik í Boganum gegn Völsungi í síðustu viku og útlit er fyrir að liðið þurfi að leika fleiri leiki í Boganum áður en Sauðárkróksvöllur verður klár.
Akureyrarvöllur hefur einnig komið illa undan vetri en KA hefur leikið fyrstu heimaleiki sína í Boganum. Stefnan er hins vegar að KA spili á Akureyrarvelli gegn Víkingi Reykjavík þann 8. júní næstkomandi.
,,Akureyrarvöllur verður ekki uppá sitt allra besta þá en vel boðlegur. Okkur vantar illilega lofthita og við það er ansi erfitt að eiga," sagði Gunnar Níelsson formaður knattspyrnudeildar KA léttur í bragði.
,,Annars er það mín skoðun að gervigras sé það sem koma skal á völlum hér á landi, tíðarfar er þannig að við eigum að horfa til þess tel ég."
,,Fótboltavöllur með stúku er gríðarleg fjárfesting og sú staðreynd að þessi mikla fjarfesting er einungis nothæf í 16-20 vikur á ári kallar á að við gerum eitthvað til þess að nýta mannvirkið miklu betur. Gott hágæða gervigras er það sem koma skal."



