4,2 milljónir söfnuðust
Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður NEC Nijmegen, mætti í heimsókn á Barnaspítala hringsins í dag færandi hendi.
Guðlaugur hafði ásamt Gísla Guðmundssyni, Jóni Erni Stefánssyni, Marteini Þorkelssyni og Rúti Snorrasyni staðið að góðgerðarkvöldverði sem fram fór nýlega. Margir skemmtikraftar gáfu vinnu sína og Auðunn Blöndal var veislustjóri.
Alls söfnuðust 4,2 milljónir króna á kvöldinu fékk Barnaspítalinn ávísunina í dag.
Íþróttaálfurinn og Solla stirða mættu með Guðlaugi Victori á Barnaspítalann í dag og skemmtu þau krökkunum. Meðal annars fengu þau hjálp frá íþróttafréttamanni RÚV en Adolf Ingi Erlingsson sýndi ballet-spor.
Hér á eftir kemur inn viðtal við Guðlaug Victor.























