Heimild: BBC
Wayne Rooney er áfram orðaður við PSG í slúðurpakka dagsins.
PSG ætlar að reyna að krækja í Wayne Rooney framherja Manchester United á 40 milljónir punda. (Daily Mirror)
Talið er að PSG hafi haft samband við Rooney sjálfan til að ræða félagaskiptin. (L'Equipe)
Frank Lampard hefur gefið í skyn að hann vilji vera hjá Chelsa til ársins 2016. (London Evening Standard)
Ramon Calderon, fyrrum forseti Real Madrid, segir að Cristiano Ronaldo sé mögulega á leið til Chelsea. (Talksport)
Talið er að Liverpool hafi hafnað tilboði um að lána Stewart Downing til Fulham. Félagið er hins vegar til í að selja leikmanninn til Fulham. (Daily Mirror)
Darren Bent hefur fengið þau skilaboð að hann megi fara frá Aston Villa í sumar. (Daily Mail)
West Ham vonast til að fá Romelu Lukaku frá Chelsea. (Metro)
Montpellier hefur sett 85,4 milljóna punda verðmiða á miðjumanninn Remy Cabella en hann er á óskalista Arsenal. (TAlksport)
Napoli vill fá Rafael Benítez sem stjóra og einnig framherjann Fernando Torres. (Daily Mirror)
Hull ætlar að reyna að fá Maynor Figueroa frá Wigan, sem og Charlie Austin frá Burnley og Peter Odemwingie frá West Bromwich Albion. (Daily Mail)
Tottenham ætlar að kaupa framherjana Roberto Soldado og Leandro Damiao á samtals 36 milljónir punda frá Valencia og Internacional. (Daily Express)
Everton og Inter hafa áhuga á Wakaso Mubarak miðjumanni Espanyol. (Marca)
Chelsea hefur lagt fram fyrirspurn í Burak Yilmaz framherja Galatasaray. (The Guardian)
Robert Green er til í að vera áfram í herbúðum QPR. (London Evening Standard)
Newcastle er ekki til í að borga 15 milljónir punda fyrir Andy Carroll líkt og West Ham. (Daily Telegraph)
Arsenal mun hlusta á fimm milljóna punda tilboð í Thomas Vermaelen. (The Sun)





