Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 23. maí 2013 10:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Rory Delap á förum frá Stoke
Innkastarinn og miðjumaðurinn Rory Delap er á förum frá Stoke eftir sjö ára dvöl hjá félaginu. Delap var ekki í myndinni hjá Stoke á nýliðnu tímabili en hann fór til Barnsley á láni í janúar.

,,Ég er svolítið leiður að hafa ekki fengið tækifæri til að þakka stuðningsmönnum Stoke fyrir stuðninginn í uppsveiflu félagsins undanfarin sjö ár," sagði Delap.

,,Það lítur út fyrir að félagið sé á leið í aðra átt en eftir að hafa ekki komið mikið við sögu á tímabilinu þá vissi ég hvort sem er að það væri kominn tími fyrir mig að fara."

,,Ég hef sannað fyrir sjálfum mér og öðrum að ég get ennþá spilað ofarlega eftir að hafa hjálpað Barnsley að halda sæti sínu á þessu tímabili og ég tel mig geta spilað nokkur tímabil í viðbót."


Delap hefur átt stóran þátt í mörgum mörkum Stoke undanfarin tímabil með löngum innköstum sínum en hann var í miklu uppáhaldi hjá Tony Pulis fráfarandi stjóra félagsins.
Slapp
banner
banner
banner