Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, vill láta Phil Jones spila í miðvarðastöðunni í framtíðinni.
Jones lék 17 leiki með félagsliði sínu Manchester United á tímabilinu, en spilaði í mismunandi stöðum eins og í bakverði eða á miðjunni.
Jones lék 17 leiki með félagsliði sínu Manchester United á tímabilinu, en spilaði í mismunandi stöðum eins og í bakverði eða á miðjunni.
En Hodgson er spenntur að sjá hvernig þessi 21. árs gamli leikmaður tekur sig út í hjarta varnarinnar, en hann hefur ekki náð að vinna sætið af Rio Ferdinand eða Nemanja Vidic hjá Englandsmeisturunum.
,,Phil er einn af þeim sem hefur ekki verið að spila reglulega hjá félagsliði sínu," sagði Hodgson.
,,Hann hefur verið látinn spila í ýmsum stöðum. Hann hefur spilað í vörninni og staðið sig vel. Hann hefur líka leikið á miðjunni."
,,En hann kom til United sem varnarmaður og ég held að hann vilji spila í vörninni. Hann á líka meiri möguleika á að festa sig í sessi sem miðvörður frekar en bakvörður, því það er mikil samkeppni um bakvarðastöðurnar."
England mætir Írlandi í vináttuleik á Wembley þann 29. maí og fjórum dögum síðar heimsækir liðið Brasilíu.




