Hópur stuðningsmanna Manchester City ætlar að kaupa auglýsingu í ítalska íþróttablaðið Gazetta dello Sport til að þakka Roberto Mancini fyrir ár sín hjá félaginu.
Yfir 700 stuðningsmenn Manchester City hafa safnað meira en 7000 pundum (1,3 milljón króna) fyrir auglýsingunni sem mun birtast í Gazetta dello Sport á næstunni.
Mancini keypti heilsíðu auglýsingu í Manchester Evening News síðastliðinn laugardag þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum fyrir tíma sinn hjá félaginu.

Mancini var rekinn á dögunum eftir tvö og hálft ár í starfi en undir hans stjórn varð Manchester City enskur meistari í fyrra.