Það var Íslendingaslagur í sænsku úrvalsdeildinni í dag þegar Halmstad tók á móti Norrköping en Kristinn Steindórsson og Guðjón Baldvinsson voru í byrjunarliði Hamlstad á meðan Gunnar Heiðar Þorvaldsson var í byrjunarliði Norrköping.
Gunnar Heiðar skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Norrköping á 70. mínútu og hans sjötta mark á leiktíðinni en Mikael Boman jafnaði fyrir Halmstad sex mínútum síðar og lauk leiknum 1-1. Eftir tíu umferðir er Norrköping í áttunda sæti en Halmstad situr í því þrettánda.
Hannes Sigurðsson kom inn á sem varamaður í liði Mjallby sem tapaði 3-0 fyrir Åtvidaberg en liðin eru í sjötta og sjöunda sæti.
Þá léku Jón Guðni Fjóluson og Ari Freyr Skúlason allan leikinn með Sundsvall sem lagði Ljungskile 3-1 í sænsku fyrstu-deildinni.



