Við mælum sérstaklega með fyrstu færslunni í Twitter dagsins en þar má finna tengil á ansi sérkennilega en skemmtilega síðu á netinu!
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Hilmar Sigurjónsson leikmaður Léttis:
Þetta hlýtur að vera besta síðan á weraldarwewnum þessa dagana: http://eaglesthatlooklikearsenewenger.tumblr.com/
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður á RÚV:
Frábært hjá @SoliHolm að gera Konna hátt undir höfði. Einhver flottasti stuðningsmaður Þróttar í fótboltanum og Vals í handboltanum. #konni
Haraldur Hróðmarsson leikmaður Þróttar:
Hvernig væri að hætta að skikka smábæi til að byggja stúkur og skikka frekar félög til að vera með hita undir völlum? #potturbrotinn
Hafþór Hafliðason umboðsmaður:
Lið á Norðurlandi verða og eiga að spila á gervigrasi. Gervisgras = kjöraðstæður allt árið, gras = kjöraðstæður 1-2 mánuður max. #nobrainer
Kolbeinn Tumi Daðason íþróttafréttamaður á 365:
Gríðarlega spenntur fyrir vináttuleik Chelsea og Manchester City í Bandaríkjunum. Ljóst að leikmenn beggja liða verða all in. #EnginnSegir
Kjartan Atli Kjartansson leikmaður Álftaness:
Þessi Afríku United brandari er löngu búinn. Endalaus gróf brot og um leið og einhver segir eitthvað er Race Card-ið dregið upp.
Brian Gilmour leikmaður KA:
Einn af strákunum tók viðtal við mig í dag, fyrsta spurning....Brian..hvað heitir þú og hvaðan ertu? #sönnsaga #WOW #Klárstrákur @Kristjanf2
David Luiz leikmaður Chelsea:
Ég elska fótbolta
Emmanuel Frimpong leikmaður Arsenal:
Heyy ég vildi bara láta vita að ég fór í aðgerð í gærkvöldi og verð frá í átta vikur, það er leiðinlegt að ég geti ekki spilað með landsliði Gana í undankeppni HM



