Þýska liðið Wolfsburg er Evrópumeistari kvenna eftir 1-0 sigur á franska liðinu Lyon í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld.
Wolfsburg fullkomnaði þar með þrennuna í kvöld en liðið er einnig þýskur deildar- og bikarmeistari.
Úrslitaleikurinn í kvöld fór fram á Stamford Bridge í London og eina mark leiksins skoraði Martina Müller fyrir Wolfsburg úr vítaspyrnu í seinni hálfleik og tryggði sigurinn.
Wolfsburg batt þar með enda á sigurgöngu Lyon sem hafði ekki tapað í 95 leikjum í röð og kom í veg fyrir að Lyon ynni Meistaradeildina þriðja árið í röð.




