Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 23. maí 2015 15:56
Eyþór Ernir Oddsson
3. deild: Jafnt í Akraneshöllinni
Sigurður Donys var á skotskónum í dag
Sigurður Donys var á skotskónum í dag
Mynd: Jósep Jósepsson
Kári 2-2 Einherji
0-1 Sigurður Donys Sigurðsson ('45)
1-1 Fjalar Örn Sigurðsson ('45)
1-2 Todor Hristov ('82)
2-2 Dominik Bajda ('85)

Kári og Einherji áttust við í Akraneshöllinni en þeim leik lauk með 2-2 jafntefli.

Það voru Sigurður Donys og Todor Hristov sem skoruðu fyrir Einherja en þeir Fjalar Örn Sigurðsson og Dominik Bajda skoruðu fyrir heimamenn frá Akranesi.

Þetta var fyrsta stig Einherja í sumar en þeir töpuðu 6-0 gegn Magna frá Grenivík í fyrstu umferð.

Kári lögðu hinsvegar Víði Garði 5-0 í fyrstu umferðinni og eru því sem stendur í 2. sæti deildarinnar með 4 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner