lau 23. maí 2015 10:00
Stefán Haukur
Mancini: Inter verður frábært lið
Mynd: Getty Images
Roberto Mancini segir að hann og Erick Thohir, eigandi Inter, munu byggja frábært Inter lið fyrir næsta tímabil en segir að þeir megi ekki gera nein mistök í félagsskiptaglugganum.

Inter eru fjórum stigum frá Evrópudeildarsæti þegar aðeins tveir leikir eru eftir og eiga því enn séns á að spila í Evrópukeppni á næsta ári.

„Thohir langar að byggja frábært lið sem er frábært fyrir mig," sagði Mancini við blaðamenn.

„Næstu mánuðir verða mjög mikilvægir. Við þurfum að gera góð kaup sem hjálpa liðinu."

„Ef við finnum réttu leikmennina, æfum vel og nýtum þá leikmenn sem við eigum þá getum við orðið frábært lið," bætti hann við.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner