Spennan er í algjöru lágmarki fyrir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun. Stóra spurningin er hvort Hull eða Newcastle kveðji deildina. Við minnum á enska hringborðið á X-inu í dag þar sem tímabilið verður gert upp en hér eru tíu menn sem kveðja ensku úrvalsdeildina á morgun - pottþétt eða líklega. Mirror tók saman.
Frank Lampard - New York kallar. Lampard var gríðarlega sigursæll hjá Chelsea en kveður sem leikmaður Manchester City.
Radamel Falcao - Afar ólíklegt að hann verði áfram á Old Trafford enda hefur lítið sem ekkert gengið upp.
Brad Friedel - Þjónaði Blackburn, Aston Villa og Spurs frábærlega. Snýr sér að sérfræðihlutverki í sjónvarpi.
Angel Di Maria - Byrjaði tímabilið frábærlega en svo fór að halla undan fæti. Er í eigu Man Utd og kannski sá ólíklegasti á listanum til að kveðja á morgun...
David de Gea - Ef hann er að kveðja ensku úrvalsdeildina þá kveður hann sem einn besti leikmaður deildarinnar.
Athugasemdir