Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   lau 23. maí 2015 16:35
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Útvarpsþátturinn í heild: Pepsi og enski
Mynd: Fótbolti.net
Á Vísi er hægt að nálgast upptökur af útvarpsþættinum Fótbolti.net í heild sinni. Nú er komin inn upptaka af þættinum í dag og má hlusta á hann í spilaranum hér neðst í fréttinni.

Þátturinn var tvískiptur í dag laugardag. Fyrri helmingurinn fór í Pepsi-deildina en sá síðari í enska hringborðið, það síðasta þetta tímabilið!

Heildarupptökur koma inn á Vísi

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson eru umsjónarmenn þáttarins sem er alla laugardaga milli 12 og 14 á X-inu FM 97,7.

Þeir skoðuðu það helsta sem er í gangi í Pepsi-deildinni og sérfræðingurinn Guðmundur Steinarsson var ekki langt undan. Deildin fer frábærlega af stað og margt að ræða.

Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar verður á morgun sunnudag og í tilefni þess var enska hringborðið í síðasta sinn þetta tímabilið. Elvar og Tómas fengu til sín Kristján Atla Ragnarsson af kop.is og Magnús Má Einarsson, ritstjóra Fótbolta.net. Farið var yfir það besta og versta á tímabilinu!


Athugasemdir
banner
banner
banner