Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 23. maí 2016 15:53
Magnús Már Einarsson
19 ára með átta titla í meistaraflokki
Kingsley Coman.
Kingsley Coman.
Mynd: Getty Images
Franski landsliðsmaðurinn Kingsley Coman á nóg af medalíum úr meistaraflokki þrátt fyrir að vera einungis 19 ára gamall.

Um helgina vann Coman áttunda titil sinn í meistaraflokki þegar hann varð þýskur bikarmeistari með Bayern.

Coman er í láni hjá Bayern frá Juventus en hann hefur unnið fjölda titla með báðum liðum.

Coman var einungis 16 ára gamall þegar hann byrjaði að spila með PSG og hann vann þrjá titla í Frakklandi áður en hann fór til Juventus í júlí 2014.

Hér að neðan má sjá titlana sem Coman hefur unnið en hann verður í eldlínunni með Frökkum á EM í sumar. Bætir hann við titli í safnið þar?

Titlar Coman
Þýskur meistari
Þýskur bikarmeistari
Ítalskur meistari
Ítalskur bikarmeistari
Ítalski ofurbikarinn
Franskur meistari (tvisvar)
Franski ofurbikarinn
Athugasemdir
banner
banner