Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mán 23. maí 2016 11:15
Jóhann Ingi Hafþórsson
Laugardalsvelli
Aron Einar: Ég rappaði en þið vonandi fáið ekki að sjá það
Icelandair
Aron Einar Gunnarsson á landsliðsæfingu í dag.
Aron Einar Gunnarsson á landsliðsæfingu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson segir í samtali við Fótbolta.net í dag að tímabilið með Cardiff hafi verin ákveðin vonbrigði. Hann var inn og út úr liðinu og var að glíma við meiðsli.

Landsliðið kom saman í dag og hófust æfingar fyrir veisluna í Frakklandi sem hefst eftir um þrjár vikur.

„Ákveðin vonbrigði, ég er ekki alveg vanur því að spila svona lítið. Í byrjun tímabilsins var ég meiddur og átti erfitt með að komast inn í liðið. Svo kemst ég inn í liðið í miðjunni og veikist."

Hann hefur eins og áður hefur komið fram, verið að glíma við meiðsli.

„Ég er ágætur en ég veit ég þarf að spila með smá sársauka í sumar en ég fer í alla leiki 100%."

Gummi Ben bað Aron um að rappa á herrakvöldi Þórs en fyrirliðinn vildi lítið hrósa sér fyrir þá frammistöðu.

„Ég rappaði en ég bað fólk helst ekki um að setja það á samskiptamiðla, þið vonandi fáið ekki að sjá það."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner