mán 23. maí 2016 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ayew: Nokkur félög sem hafa áhuga
Ayew átti gott tímabil með Swansea
Ayew átti gott tímabil með Swansea
Mynd: Getty Images
Andre Ayew, leikmaður Swansea, hefur viðurkennt það að það séu nokkur félög sem hafi áhuga á sér.

Ayew, sem gekk til liðs við Swansea frá Marseille síðasta sumar, átti gott tímabil og endaði sem markahæsti maður liðsins með 12 mörk, einu marki meira en Gylfi Þór Sigurðsson.

Samkvæmt heimildum Sky þá á Swansea enn eftir að fá tilboð í leikmanninn, en Chelsea, Sunderland og West Ham eru öll sögð hafa áhuga á honum.

„Mér líkar vel við England og mér líður vel hjá Swansea. Þetta var gott ár fyrir mig. Tímabilið var gott fyrir mig persónulega," sagði Ayew.

„Auðvitað vilja allir leikmenn spila í Meistaradeildinni eða um titla. Minn tími mun koma í þeim efnum."

„Ég mun ekki segja mikið, en árangur minn á þessu tímabili hefur vakið áhuga annara liða. Við munum sjá hvað gerist seinna."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner