David Moyes verður ekki næsti knattspyrnustjóri Aston Villa. BBC greinir frá þessu.
Moyes var á þriggja manna lista Villa yfir þá sem gætu tekið við liðinu eftir fall þess úr ensku úrvalsdeildinni.
Moyes, sem er fyrrum stjóri Everton og Manchester United, tók sér helgina í að velta fyrir sér tilboði frá Villa en gaf félaginu svo neitun í morgun.

Moyes hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Real Sociedad í fyrra. Hann var staddur á Íslandi á dögunum á ráðstefnunni Business and Football í Hörpu.
Athugasemdir